Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í slóð
Beint í flýtileiðir

Ágætu foreldrar

Að þessu sinni hef ég fjölmargar fréttir fyrir ykkur og það er margt á döfinni fyrir næstu vikur.

Í næstu viku fara börnin í smáholti í lambaferð að Fjalli en með viðkomu á tveimur stöðum á leiðinni. Fiðrildahópur og hundahópur fara á þriðjudaginn og lagt verður af stað um 9:30 og áætluð heimkoma er fyrir kl. 14:00. Sigrún og Helga fara með þeim.

Gírafahópur fer á miðvikudaginn á sama tíma og fara Sirrý, Jette og Magga með þeim. Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að skilja eftir stóla fyrir börnin og merkja þá með einhverjum hætti.

Slökkviliðið stefnir á að koma í sína árlegu heimsókn 21. maí og þá gefst börnunum vonandi tækifæri til að skoða slökkviliðsbílinn.

Fimmtudaginn 24. maí og föstudaginn 25. maí er leikskólinn lokaður vegna starfsdaga – sem við nýtum til námsferðar til Svíþjóðar, nánar tiltekið til heimahéraðsins hennar Millu. Það eru þrír starfsmenn sem fara ekki til Svíþjóðar en þær fara í staðin að heimsækja leikskóla hér á Suðurlandi.

Farið verður í útskriftarferð elstu barnanna hér í leikskólanum 30. maí og stefnan er að hún sé með svipuðu sniði eins og í fyrra þar sem það var talið heppnast mjög vel. Sirrý deildarstjóri kemur til með að hafa samband við foreldra varðandi nánari útlistingu og skipulag.

Síðan áætlar foreldrafélagið vorhátíð leikskólans sennilega 8.júní. Það verður einnig auglýst síðar.

Í júní fáum við sérlegan aðstoðarmann í leikskólann en það er hann Elvar Örn í Björnskoti. Hann kemur til með að vera tvo daga í viku í júní hjá okkur í leikskólanum.

Það eru töluverðar breytingar í skipulagi og starfsmannamálum framundan. Þær Jette og Alla eru á tímabundinni ráðningu og því ljóst fyrirfram að þær yrðu í leikskólanum bara til 25. júní. Hins vegar hafa þrír starfsmenn sagt upp störfum (Vilborg, Sigríður Björk G. og Steinunn) frá og með 1. maí og í kjölfar þess verða stærstu breytingarnar. Ráðinn verður nýr leikskólastjóri við leikskólann og núna verður framvegis einn deildarstjóri í húsinu. Framkvæmd og skipulagning á því er í höndum komandi leikskólastjóra en áætlað er að nýr leikskólastjóri taki við störfum 30.júlí n.k.. Ég fer í snemmborið sumarleyfi 1. júní og mun Sigríður Björk taka við stjórnartaumunum þessar 3 vikur sem eftir eru af júní.

Ég minni foreldra á að láta vita ef börnin verða í lengra sumarleyfi en lokunartími leikskólans. Nú er verið að skipuleggja ágúst svo það væri gott að vita um þann mánuð.

Með góðri kveðju
Vilborg M. Ástráðsdóttir
Leikskólastjóri.

13. apríl 2012

Árshátíðin okkar verður haldinn síðasta dag vetrar, 18. apríl, kl. 14.·
Leikrit - söngur - glens - gaman
Allir velkomnir

Foreldrar eru beðnir um að koma með góðgæti á hlaðborðið.
Í anddyrinu verður borð með óskilamunum, vinsamlegast athugið vel hvort þar leynist eitthvað úr ykkar eigu. Það sem eftir verður, verður gefið í Rauða krossinn
 


4. apríl 2012
Í dag voru í heimsókn hjá okkur þrír nemendur úr félagsfræðiáfanga í Menntaskólanum á Laugarvatni. Þeir kynntu sér starfið hjá okkur og upplifðu með börnunum. T.d. prufuðu þeir að kubba með börnunum og blása sápukúlur.

bestu kveðjur

28. mars 2012
Í síðustu viku fengum við góða gesti í heimsókn en það var hann Bernd Ogrodnik frá Brúðuheimum í Borgarnesi. Hann sýndi okkur leikritið Pétur og Úlfinn við mikla hrifningu þeirra sem á horfðu. Í tilefni af þessari leiksýningu komu 1. og 2. bekkur í heimsókn í leikskólanum ásamt Jenný kennara. Það var því fjölmennt og skemmtilegt í húsinu þennan daginn og reglulega gaman að sjá ,,börnin okkar“ aftur. Við þökkum foreldrafélaginu okkar kærlega fyrir að bjóða upp á þessa sýningu og honum Bernd mikið vel fyrir stórskemmtilega sýningu. 

Kærar kveðjur
Starfsfólk Leikholts.
21.03.2012_045a
21.03.2012_052a
21.03.2012_064a
21.03.2012_072a
21.03.2012_110a


19. mars 2012

Næsta miðvikudag, 21. mars, koma nemendurnir 5 sem eru í 1. bekk Þjórsárskóla í heimsókn til okkar og er það seinni leikskólaheimsóknin þeirra í vetur. Þennan dag býður foreldrafélag leikskólans upp á leiksýninguna Pétur og úlfurinn (kl. 10.00) og er nemendum 1. og 2. bekkjar einnig boðið á hana. Af því tilefni hefur verið ákveðið að nemendur í 2. bekk og Jenný kennari komi til okkar að morgni ásamt nemendum 1. bekkjar og taki þátt í starfi og leik með börnunum í Stórholti fram að leiksýningu. Þegar henni lýkur fara Jenný og 2. bekkur með skólabíl í Þjórsárskóla en 1. bekkur verður áfram hjá okkur þar til kl. 14:15.

Bestu kveðjur Matthildur 

22. febrúar 2012

Öskudagsskemmtun

22.02.2012_127a
Nýafstaðin öskudagsskemmtun tókst með eindæmum vel og skemmtu ungir og eldri sér konunglega. Börnin fengu gotterí í öskudagspoka – sum barnanna tóku þá með sér heim til að klára úr þeim en okkur þætti vænt um að fá þá tilbaka að því loknu. Við viljum þakka þeim fjölmörgu foreldrum sem litu við kærlega fyrir komuna.
22.02.2012_194a
22.02.2012_225a

Næst á dagskrá er dagamars í mars – en í hverri viku gerum við eitthvað sérstakt. Það verður auglýst síðar. Við endum svo marsmánuð á leiksýningu sem foreldrafélagið okkar býður uppá. Framundan er skemmtilegur og spennandi tími.

Með góðri kveðju
Vilborg María
leikskólastjóri


9. febrúar 2012
Ágætu foreldrar

Ég vil minna á nýjar reglur sem samþ. voru á skólanefndarfundi í desember sl. og kynntar voru foreldrum á heimasíðu leikskólans í byrjun janúar en þær eru að frá og með 1. febrúar leggst sérstakt sektargjald á þá foreldra sem koma of seint að sækja og er það 500,- fyrir hverjar hafnar 15 mín. Þetta sektargjald verður rukkað inn með leikskólagjöldum. Þetta sektargjald á ekki við ef það kemur eitthvað sérstakt uppá sem veldur því að foreldrar verði óviðráðanlega seinir að sækja og því eftir sem áður hvetjum við foreldra til að hringja ef aðstæður eru þannig. Annað sem ég vil benda foreldrum á að frá og með 1. febrúar geta foreldrar sótt um niðurfellingu á fæðisgjaldi hafi barn verið veikt í a.m.k. 3 daga samfellt. Leikskólastjóri kemur til með að senda út tölvupóst til foreldra í lok mánaðar og með því að svara þeim tölvupósti og óska þar eftir niðurfellingu fer það sjálfkrafa í það ferli.

Með góðri kveðju
Vilborg M. Ástráðsd.

 



8. febrúar 2012

Komið þið sæl ágætu foreldrar

Nú langar okkur að biðla til ykkar um smávegis sem gæti leynst heima – ónotað, eitthvað sem einhver er vaxin uppúr. Okkur vantar svokallaða sokkaskó (sjá mynd), bara eins og 2-3 pör því það er svo gott fyrir börnin að æfa sig í að klæða sig úr og í.
sokkaskor
Þau gera mikið af því í hlutverkaleik, en það vantar eitthvað fyrir fætur, eins væri alveg frábært að fá stígvél, gúmmískó og annan skófatnað (sem ekki þarf skóhorn með).
Það væri einnig gott að fá regngallabuxur og einhvern jakka sem er með stórum tölum eða mjög auðveldum rennilás.

Eins langar okkur að athuga hvort þið gætuð safnað fyrir okkur efnivið sem við notum í ,,könnunarleikinn“ okkar en hann snýst um að leika sér með verðlausan efnivið. Sem dæmi eru sjampóbrúsar eða álíka, plastkeðjur (sem við klippum niður í hæfil. lengd), rör, hringir, hólkar, dollur, gamlir lyklar ofl. ofl. Við sjáum um að meta hlutina - hvort og hvernig við getum notað.

Með fyrirfram þökk Starfsfólk Leikholts



5. febrúar 2012
Dagur leikskólans 6. febrúar
16.0112_072b

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.

Dagur leikskólans er nú haldinn í fimmta sinn og af því tilefni er opið hús í leikskólanum okkar Leikholti fyrir hádegi. Þetta er því tilvalið tækifæri til að sjá í hnotskurn hvernig leikskólastarfsemin fer fram.

Góðar kveðjur
Starfsfólk Leikholts.


3. febrúar 2012
Nýtt símanúmer leikskólastjóra: 8952995
31.01.2012_001aa
Með góðri kveðju
Vilborg M. Ástráðsdóttirleikskólastjóri Leikholti

26. janúar 2012
Leikskóli fellur niður í dag fimmtudag, vegna slæms veðurs og færðar.

Leikskólastjóri






images_1
Næstkomandi föstudag, 20. Janúar, býður leikskólinn feðrum og forráðam. að koma í morgunkaffi á tímanum milli 9:00 – 10:00.
Hvetjum alla (einnig þá feður og börn sem eiga ekki vistun á fös.) að koma og eiga með okkur skemmtilega stund.  
Heitt kaffi á könnunni og smá snarl með.

Bestu kveðjur,
börn og starfsfólk Leikholts





Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir liðnar stundir á liðnu ári og árum.

Líkt og undanfarin ár þá hækkar gjaldskráin um áramót og að þessu sinni um 4%. Ný gjaldskrártafla verður sett inn á heimasíðuna okkar og sveitarfélagsins innan skamms.

Á síðasta skólanefndarfundi voru jafnframt samþykktar nokkrar breytingar varðandi leikskólastarfsemina og taka þær gildi frá og með 1. febrúar næstkomandi. Þær eru að núna verður sérstakt sektargjald fyrir þá foreldra sem koma of seint að sækja og er það 500,- fyrir hverjar hafnar 15 mín. Þetta sektargjald á ekki við ef það kemur eitthvað sérstakt uppá sem veldur því að foreldrar verði óviðráðanlega seinir að sækja og því eftir sem áður hvetjum við foreldra til að hringja.

Systkinaafsláttur hefur verið aukinn úr 50% í 100% fyrir þriðja barn.

Reglur um vistunartíma barna hafa verið einfaldaðar þannig að korterin eru núna aflögð, þ.e. foreldrar verða að kaupa heilan eða hálfan tíma. Allur vistunartími umfram 8:00 – 16:00 er dýrari og sótt um hann sérstaklega eftir 1. febrúar. Það verður samt ekki farið út í það að láta alla fylla út ný vistunarblöð, þau taka bara við þeim gömlu þegar óskað er eftir nýjum vistunartíma.

Starf leikskólans er í ákveðnum föstum skorðum þó með tilheyrandi smávægilegum breytingum. Allur 2009 árgangurinn er nú kominn í Stórholt og fylgir Magga þeim. Þau eru í óða önn að læra á allar breytingarnar og taka nýju leikefni og viðfangsefnum fegins hendi.

Á síðasta starfsmannafundi var m.a. ákveðið að fara út í sérstakt átak varðandi hvetjandi málumhverfi og fengu Matta og Sirrý að útfæra það nánar.

Önnur tilbreyting að í staðin fyrir okkar sérstöku daga, eins og t.d. rauðan dag eða röndóttan dag þá ætlum við að láta þetta ná yfir lengri tíma eða viku. Það þýðir þó ekki að börnin ,,eigi“ að koma í einhverju (t.d.) gulum fötum alla vikuna ...  Breytingin er á þann veg að börnin mega, ef þau geta klæðast eða koma með eitthvað sérstakt í þeim lit þá vikuna og við nýtum okkar úrræði og þekkingu innanhús til að vekja athygli á litnum, munstrinu eða því sem við veljum í það skiptið. Liturinn blár verður þemað vikuna 9. – 13. janúar og er það í höndum deildanna að útfæra hvernig verði unnið.

Ein lítil dama, Sunna Líf Gautadóttir flutti búferlum í byrjun desember til höfuðborgarinnar. Við þökkum henni kærlega fyrir samveruna. Önnur lítil dama, Ástríður Sólveig J. Schougaard hóf leikskólagöngu 1. desember s.l. og síðan kemur Silvia Rún Kristoffersen til okkar á næstu dögum. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar.

Bóndadaginn, (20. jan) bjóðum við pöbbum í morgunkaffi – og við hvetjum þá sem eru ekki með börnin í vistun á föstudögum að koma samt með börnin og taka þátt. Við auglýsum þetta nánar þegar nær dregur.

Góðar kveðjur
Vilborg M. Ástráðsd.
Leikskólastjóri.

 

Leikskólinn Leikholt  |  Brautarholti  |  801 Selfoss  |  s: 486 5586  gsm: 895 2995 |  leikskoli@skeidgnup.is

 
Brautarholt
Merki leikholts