Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í slóð
Beint í flýtileiðir
Forsíða

26. janúar 2012

Leikskóli fellur niður í dag fimmtudag, vegna slæms veðurs og færðar.

Leikskólastjóri





images_1
Næstkomandi föstudag, 20. Janúar, býður leikskólinn feðrum og forráðam. að koma í morgunkaffi á tímanum milli 9:00 – 10:00.
Hvetjum alla (einnig þá feður og börn sem eiga ekki vistun á fös.) að koma og eiga með okkur skemmtilega stund.  
Heitt kaffi á könnunni og smá snarl með.

Bestu kveðjur,
börn og starfsfólk Leikholts





Gleðilegt nýtt ár og kærar þakkir fyrir liðnar stundir á liðnu ári og árum.

Líkt og undanfarin ár þá hækkar gjaldskráin um áramót og að þessu sinni um 4%. Ný gjaldskrártafla verður sett inn á heimasíðuna okkar og sveitarfélagsins innan skamms.

Á síðasta skólanefndarfundi voru jafnframt samþykktar nokkrar breytingar varðandi leikskólastarfsemina og taka þær gildi frá og með 1. febrúar næstkomandi. Þær eru að núna verður sérstakt sektargjald fyrir þá foreldra sem koma of seint að sækja og er það 500,- fyrir hverjar hafnar 15 mín. Þetta sektargjald á ekki við ef það kemur eitthvað sérstakt uppá sem veldur því að foreldrar verði óviðráðanlega seinir að sækja og því eftir sem áður hvetjum við foreldra til að hringja.

Systkinaafsláttur hefur verið aukinn úr 50% í 100% fyrir þriðja barn.

Reglur um vistunartíma barna hafa verið einfaldaðar þannig að korterin eru núna aflögð, þ.e. foreldrar verða að kaupa heilan eða hálfan tíma. Allur vistunartími umfram 8:00 – 16:00 er dýrari og sótt um hann sérstaklega eftir 1. febrúar. Það verður samt ekki farið út í það að láta alla fylla út ný vistunarblöð, þau taka bara við þeim gömlu þegar óskað er eftir nýjum vistunartíma.

Starf leikskólans er í ákveðnum föstum skorðum þó með tilheyrandi smávægilegum breytingum. Allur 2009 árgangurinn er nú kominn í Stórholt og fylgir Magga þeim. Þau eru í óða önn að læra á allar breytingarnar og taka nýju leikefni og viðfangsefnum fegins hendi.

Á síðasta starfsmannafundi var m.a. ákveðið að fara út í sérstakt átak varðandi hvetjandi málumhverfi og fengu Matta og Sirrý að útfæra það nánar.

Önnur tilbreyting að í staðin fyrir okkar sérstöku daga, eins og t.d. rauðan dag eða röndóttan dag þá ætlum við að láta þetta ná yfir lengri tíma eða viku. Það þýðir þó ekki að börnin ,,eigi“ að koma í einhverju (t.d.) gulum fötum alla vikuna ...  Breytingin er á þann veg að börnin mega, ef þau geta klæðast eða koma með eitthvað sérstakt í þeim lit þá vikuna og við nýtum okkar úrræði og þekkingu innanhús til að vekja athygli á litnum, munstrinu eða því sem við veljum í það skiptið. Liturinn blár verður þemað vikuna 9. – 13. janúar og er það í höndum deildanna að útfæra hvernig verði unnið.

Ein lítil dama, Sunna Líf Gautadóttir flutti búferlum í byrjun desember til höfuðborgarinnar. Við þökkum henni kærlega fyrir samveruna. Önnur lítil dama, Ástríður Sólveig J. Schougaard hóf leikskólagöngu 1. desember s.l. og síðan kemur Silvia Rún Kristoffersen til okkar á næstu dögum. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar.

Bóndadaginn, (20. jan) bjóðum við pöbbum í morgunkaffi – og við hvetjum þá sem eru ekki með börnin í vistun á föstudögum að koma samt með börnin og taka þátt. Við auglýsum þetta nánar þegar nær dregur.

Góðar kveðjur
Vilborg M. Ástráðsd.
Leikskólastjóri.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Starfsfólk Leikholts óskar börnum og foreldrum þeirra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
með kærri þökk fyrir ljúfar og góðar samverustundir.

Hittumst heil og kát á nýju ári.
(Leikskólinn opnar aftur 2. janúar.)


Jólakveðjur

Börn og starfsfólk Leikholts

 

jolak4

16. nóvember 2011

Í dag var Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur. Börnin sungu nokkur vel valin lög fyrir gesti.  Við þökkum öllum fyrir komuna og áheyrnina.

16.11.11_015_a
Gíraffahópur og Hundahópur að syngja daga og mánaðalagið

16.11.11_017_a
Fiðrildahópur flutti 2 lög
16.11.11_020_a

26. október 2011

Ágætu foreldrar

Nú er vetur genginn í garð og við þökkum fyrir sumarið. Samt sem áður er veðrið ekki farið að hrella okkur mikið, en það má svosum búast við því hvað úr hverju.
okt
Töluverðar breytingar eru í vændum, nýr starfsmaður og gamall að koma tilbaka. Sirrý hefur störf fyrsta nóvember og tekur við deildarstjórn í Stórholti þar af leiðandi fer Sigríður alfarið yfir í Smáholt. Við höfum einnig ráðið nýjan starfsmann en það er hún Jette Magnea Jónsdóttir og verður hún aðallega í Stórholti en er suma daga í Smáholti líka. Við bjóðum Sirrý og Jette hjartanlega velkomnar!
okt2
Ný börn hefja einnig vistun núna í nóvember en það eru þær Sara Björk í Þrándarholti og Kamilla Mist í Brautarholti, síðan byrjar hún Ástríður Sólveig í lok nóvember. Við bjóðum þær einnig hjartanlega velkomnar.
okt3
Um áramót er stefnt að því að árgangarnir verði saman í hópum, þ.e. hver hópur er hreinn árgangur. Einnig er stefnt að því að allur 2009 árgangurinn flytjist yfir í Stórholtið um áramót. Nánari tilhögun á því verður send foreldrum.
okt4
Síðastliðinn þriðjudag var hér afa og ömmu kaffi. Fjölmargir afar og ömmur komu, horfðu á myndasýningu um leikskólastarfið og drukku kaffi með börnunum. Við þökkum þeim kærlega fyrir innlitið.
okt5
Næsti starfsdagur er mánudagurinn 7. nóvember og leikskólinn lokaður allan daginn.

Góðar kveðjur
Vilborg

28. september 2011

sept_18_249
Komið þið sæl ágætu foreldrar og forráðamenn.

Hann Sigurjón Tristan á afmæli í dag – við setjum mynd af honum inn á heimasíðuna því það gleymdist að tilgreina hann á dagatal septembermánaðar.

September er búin að vera svo skemmtilegur því börnin hafa verið mikið úti ásamt því að takast á við ný og spennandi verkefni í hópastarfi leikskólans.

Starfsfólk leikskólans stefnir á kynnisferð til heimalands Millu næsta vor. Við komum til með að nýta starfsdaga og Hvítasunnuhelgina í þetta ferðalag og munum við tilkynna ykkur þetta með góðum fyrirvara ... eins munum við eflaust plaga ykkur með fjáröflun í vetur að einhverju tagi.

Næstu mikilvægu dagsetningar eru:
Haustþing leikskólakennara haldið föstudaginn 7. október og er leikskólinn lokaður allan daginn.
11. október verður síðan kynningarfundur leikskólans og eins og síðasta ár heldur foreldrafélagið Leiksteinn aðalfund sinn fyrr um kvöldið. Þetta þótti heppnast vel í fyrra og mæting var góð. Við hvetjum alla til að mæta og stefnir starfsmannahópurinn á að vera með sérstaklega gómsætar og ljúffengnar veitingar í boði gegn hóflegu verði .. við erum sem sagt byrjaðar á fjáröflunWink


Send hefur verið út auglýsing um starf við leikskólann. Það er enginn starfsmaður að hætta eins og ég hef fengið margar fyrirspurnir um, það hefur legið í loftinu að það þyrfti að fjölga starfsfólki vegna fjölda barngilda og frá 1. nóv – 1. jan bætast við fjögur eins árs börn. Við tökum þessu bara fagnandi og vonandi fáum við einhvern skemmtilegan starfsmann í lið með okkur.

Stefnt er á að malbika planið hér fyrir utan .. kannski orðin gömul tugga, en ég vona að nú sé komið að því. Nákvæm tímasetning verður auglýst.

Góðar kveðjur
Vilborg M. Ástráðsdóttir
Leikskólastj.






2. september 2011


leikskli_040leikskli_076


Ágætu foreldrar.

Leikskólastarfsemin er óðum að komast á fullt skrið, það tekur tíma fyrir alla að læra á skipulagið sem fylgir leikskólabatteríinu og þau börn sem hafa verið í aðlögun eru alveg að ,,ná þessu".

Nú fer að líða að því að gott væri að sjá hlýja vettlinga og húfu í fatahólfinu til viðbótar við það sem er nú þegar og við hvetjum þá foreldra sem enn geyma leikskólatöskuna á snaganum að taka fötin úr henni og raða í hólfið. Töskurnar eru svo fyrirferðamiklar og gefist hefur vel að geyma peysur, sokka, vettlinga ofl. þ.h. í hólfinu og hengja útifötin á snagann. Öll hefðbundin aukaföt fara upp á deild á tiltekin stað sem þið þekkið eflaust.
leikskli_106
Það eru alltaf smá tilfæringar í starfsmannahópnum. Þangað til Sirrý kemur til baka er dálítið knappt hjá okkur, Steinunn hleypur undir bagga og leysir af inni á deild þegar álagið er mikið, eins eigum við von á að Meike komi aftur í afleysingar í lok september. Það er gott að eiga góða að. Smile

Skaftholtsréttardaginn er leikskólinn lokaður - næsti dagur sem leikskólinn lokar er föstudagurinn 7. október en þá er Haustþing leikskólakennara. Síðan lokar leikskólinn aftur mánudaginn 7. nóvember og er það síðasti starfsdagur fyrir áramót.
leikskli_128
Ég vil benda foreldrum á að hægt er að óska eftir niðurfellingu á leikskólagjöldum ef börn eru fjarverandi í samfellda viku, tvær o.s.frv. Margir hafa nýtt sér þetta vegna utanlandsferða, sumarfrí, jól og páska. Bara að muna að sækja um fyrirfram.
leikskli_147
Ný Aðalnámskrá leikskóla kom út núna í júní 2011. Það er athyglisvert að lesa hana og ljóst að mikill metnaður hefur verið lagður í vinnuna. Í henni kveður við nýjan tón frá fyrri námskrá, fyrri hluti hennar er sameiginlegur leik-, grunn- og framhaldsskóla og eins og segir í námskránni sjálfri ,,Segja má að aðalnámskrá sé samningur þjóðarinnar við sjálfan sig um menntamál." Lagðir eru til grundvallar sex grunnþættir menntunar: læsi, sjálfbærni, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti, heilbrigði og velferð og sköpun. Námssvið leikskóla hafa breyst frá því sem áður var, í: Læsi og samskipti (var áður málörvun), heilbrigði og vellíðan (var áður hreyfing), sjálfbærni og vísindi (var áður náttúra og umhverfi) og sköpun og menning (var áður myndsköpun, menning og samfélag). Námssviðin eru núna færri og yfirgripsmeiri, því er ekki í rauninni hægt að útskýra í einföldu máli hvernig námssviðin breytast því þau skarast, vinna með hvort öðru og nú gerð krafa á að horfa meira á stóra samhengið. Það verður því dágóð vinna fyrir okkur að breyta námskránni okkar í samræmi við þessa nýju aðalnámskrá en virkilega spennandi og krefjandi verkefni.

Kynningarfundur fyrir foreldra hefur ekki enn verið dagsettur en hann er alla jafnan í október. Þar komum við m.a. til með að reyna að útskýra hvernig við ætlum að vinna eftir nýrri aðalnámskrá. Þetta verður bara gaman
leikskli_158
Með bestu kveðju
Vilborg M. Ástráðsdóttir
leikskólastjóri







Leikskólinn Leikholt  |  Brautarholti  |  801 Selfoss  |  s: 486 5586 |  leikskoli@skeidgnup.is

 
Brautarholt
Merki leikholts